Íslandsmóti innanhúss í tennis lauk í dag með úrslitaleikjum í meistaraflokki karla og kvenna og voru krýndir Íslandsmeistarar bæði í karla- og kvennaflokki.
Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og Mjúkboltafélag Reykjavíkur varð Íslandsmeistari innanhúss í karlaflokki í einliða og tvíliðaleik og Anna Soffía Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs varð Íslandsmeistari innanhúss í einliðaflokki kvenna. Þau vörðu þar með titla sína sem þau unnu í fyrra. Anthony Mills úr Hafna- og Mjúkboltafélagið vann líka til sigurs í Öðlingaflokk karlar þegar hann lagði Oscar Mauricio Uscategui úr Þrótti, 6-1, 6-4. Anthony bæt sig svo með öðlinga tvíliðaleiks titillinn ásamt Raj K. Bonifacius þegar þeir lagði Jonathan Wilkens og Daði Sveinsson, 6-3, 6-2.
Úrslitin urðu þessi:
Meistaraflokkur kvenna – Einliðaleikur
Anna Soffía Grönholm (Tennisfélagi Kópavogs) vann Hjördísi Rósu Guðmundsdóttur (Badmintonfélagi Hafnarfjörður) 6:2, 3:6, 6:3
Meistaraflokkur Karla – Einliðaleikur
Rafn Kumar Bonifacius (Hafna- og Mjúkboltafélagi Reykjavíkur) vann Vladimir Ristic (Tennisfélagi Kópavogs) 6:1, 6:3
Meistaraflokkur Karlar – Tvíliðaleikur
Rafn Kumar Bonifacius – Raj K. Bonifacius (Víkingi) unnu Egil Sigurðsson (Víkingi) – Ingimar Jónson (Tennisfélagi Garðabæjar) 6:3, 6:0