Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og Mjúkboltafélag Reykjavíkur sigraði á 2. Stórmóti Tennissambands Íslands á árinu 2015 en mótið fór fram í Tennishöllinni í Kópavogi og kláraðist í gær. Rafn Kumar lagði Vladimir Ristic úr Tennisfélagi Kópavogs að velli í úrslitaleiknum í meistaraflokki karla 6-0 og 7-6.